Um Bandið Ættir þessarar hljómsveitar má rekja allt aftur til haustsins 1999 er þeir Ingólfur Sigurðsson,Kristinn Gallagher og Pétur Valgarð Pétursson hittust á stofufundi hjá þeim fyrstnefnda og lögðu á ráðin með stofnun hljómsveitar. Ekki leið á löngu fyrr en að Kristján Gíslason söngvari hafði bæst í hópinn. Því miður varð Pétur að segja skilið við sveitina fljótlega sökum skuldbindinga við aðra sveit sem hann var í á þeim tíma, og við stöðu hans tók Bjarni Halldór Kristjánsson fyrrum gítarleikari Sú Ellen. Þá var góðvinur Kristjáns úr Herramönnum, Birkir L. Guðmundsson ráðinn á hljómborðið. Þannig var bandið orðið fullskipað og var blásið til mikilla æfinga og stefnt á „deputeringu“ sem fyrst. Það markmið náðist á Gauknum 12. apríl 2000 þegar að Spútnik kom framí fyrsta skipti.
Sveitin fór sér þó að engu óðslega og spilaði aðeins mánaðarlega á Gauknum allt fram á haustið þegar að fyrsta alvöru ballið var haldið á Hellu og tókst með ágætum. Í lok októbermánaðar urðu hljómborðsleikaraskipti og við stöðunni tók Kristinn Einarsson, sem hefur staðið þar síðan. Skömmu fyrir jólin 2000 skellti sveitin sér í hljóðver og tók upp frumsamið jólalag sem ber nafnið „Skilaboð jólanna“ sem heyrist af og til í desembermánuði og kom svo út á jólaplötunni "Komdu um jólin" árið 2004. Árið 2001 var nokkuð viðburðaríkt og bar þar hæst upptaka á laginu „Tundurdufl“, sem finna má á plötunni Svona er sumarið 2001, og náði nokkurri spilun á ljósvakamiðlum. Í febrúar árið 2002 hélt sveitin í hljóðver og tók upp frumsamið lag sem kallast „Í öllum mínum draumum“ og gerði Spútnik sitt fyrsta myndband við það lag sem Hreiðar Júlíusson hafði veg og vanda að. Í maí sama ár var svo aftur haldið í stúdíó og rokkarinn „Stjörnuryk“ hljóðritaður. Í október 2002 urðu svo mannaskipti í bandinu þegar að gítarleikarinn okkar hann Bjarni Halldór sagði skilið við sveitin vegna mikilla anna og við stöðu hans tók Pétur Valgarð Pétursson gítarkennari og rokkhundur, sá hinn sami og hafði átt þátt í að stofna sveitina tæpum þremur árum áður. Maðurinn var því loks kominn "heim". Árið 2003 byrjaði með látum og var nóg að gera hjá Spútnik við að spila á almennum dansleikjum, skólaböllum, árshátíðum og þorrablótum. Í aprílmánuði það ár skelltu Spútnikkar sér svo í hljóðver og tóku upp rokkarann „Allt sem óskar þú“ sem er að finna á plötunni Svona er sumarið 2003. Um sumarið urðu mannaskipti í bandinu þegar að Kristinn Gallagher hætti störfum en við tók Ólafur Kristjánsson. Ólafur staldraði stutt við og í nóvember 2003 fann bandið snillinginn og skósalann Kristinn Kristjánsson, sem áður hafði spilað með Kristjáni söngvara í Herramönnum, og hefur hann plokkað bassann síðan. Eftir að hafa spilað sig saman með nýjum mönnum hélt sveitin í hljóðver vorið 2005 og tók upp trommugrunna að sex nýjum lögum. Sveitin fullkláraði strax eitt af þessum nýju lögum, og heitir það "Hún virkar ekki á mig" og má finna á plötunni "Svona er sumarið 2005". Baldvin AB Aalen, trommuleikari Sóldaggar sálugu vann að þessum upptökum með Spútnik og stóð sig feykivel. Árið 2006 var haldið áfram að vinna úr þessum trommugrunnum frá því vorið áður og lagið "Frjáls" var klárað í júní það ár og aftur var það Baldvin sem að stjórnaði upptökum ásamt því að Spútnik-menn voru nokkuð duglegir að nota hljóðver sitt Mír, þar sem bassi, gítar og hljómborð voru tekin upp af þeim sjálfum.
|